Nýjustu uppfærslur/fréttir

 

Velkomin á uppfærslusíðu ÍslandRP! Hér deilum við öllum nýjustu, breytingum og spennandi viðbótum á FiveM servernum okkar. Vertu upplýst/ur, sjáðu hvað er nýtt og taktu þátt í að móta bestu upplifunina á ÍslandRP

Tilkynningar og uppfærslur ÍslandRP

Þetta svæði er tileinkað öllum helstu upplýsingum um ÍslandRP.

Hér færðu fréttir um nýjar viðbætur, breytingar á servernum, sérstaka viðburði og allt það sem er mikilvægt fyrir spilara að vita.

Markmiðið er að halda samfélaginu upplýstu og tryggja að allir séu meðvitaðir um nýjungar og þróun af servernum.

Viltu vita meira og allt á réttum tíma, kíktu við á discordið okkar, þar eru allt uppfært daglega.

ÍslandRP 5.0 uppfærslur

Tilkynningar

ÍslandRP kynnir nýtt WIPE 5.0

ÍslandRP er að fara í nýtt WIPE og um leið taka gildi umfangsmiklar breytingar á dýnamík og uppbyggingu serverins. Eftir yfirferð á fyrri wipes hefur verið ákveðið að endurhanna hagkerfið og crafting-kerfið frá grunni, með það að markmiði að efla samskipti spilara og skapa líflegra roleplay-umhverfi.

 

Stefnt er að því að opna nýja wipe’ið í kringum mánaðamót janúar og febrúar 2026.

14.01.26

ÍslandRP tekur sér smá frí

Kæru ÍslandRP spilarar!

Við höfum verið að vinna að nýrri og spennandi útgáfu af servernum sem blandar saman Survival, Farming, Roleplay, PvP og PvE möguleikum. Þetta verður eitthvað alveg nýtt og einstakt — en til að þróa þetta almennilega með áherslu á gæði og upplifun höfum við ákveðið að gefa okkur smá tíma.

Serverinn verður því lokaður yfir sumarið, og við munum meta áhuga samfélagsins aftur í haust áður en við tökum ákvörðun um áframhaldandi þróun.

Á meðan hvetjum við ykkur til að:

  • Senda inn hugmyndir af leikjum eða serverum sem samfélagið gæti spilað saman.

  • Hitta hver annan í pottunum, spila saman og halda samfélaginu lifandi!

Við erum alltaf opin fyrir uppástungum og viljum halda þessum kjarna samfélagsins gangandi — jafnvel utan GTA.

Gleðilegt sumar, roleplayarar!

Kær kveðja,
ÍslandRP

29.06.25

Styrkir

ÍslandRP búðin er opin

Styðjið við rekstur serversins og fáið aðgang að fríðindum á borð við Priority Queue, auka karakter slot og fleira.