Discord

Discord

ÍslandRP er stærsti íslenski GTA V roleplay-serverinn á Íslandi.

Hér getur þú farið á vit ævintýranna og tekið að þér ýmis störf, svo sem lögreglu, sjúkraliða eða dómara, sett dóma og jafnvel búið til þín eigin lög og reglugerðir.
Ef ekkert af þeim störfum heillar þig getur þú safnað saman hópi einstaklinga til að ráða yfir ákveðnum svæðum í borginni, rænt búðir eða banka, eða farið í ýmis verkefni sem geta gert þig auðugan.

Pottarnir (voice channels) eru oftast með einhverjum í, sem þú getur leitað til eða tekið klassíska „potta-spjallið“ og rætt um daginn og veginn.

Hér getur þú fundið eitthvað við þitt hæfi og jafnvel kynnst nýjum hæfileikum sem þú bjóst ekki við af sjálfum þér!

Komdu í heimsókn í borgina — við hlökkum til að sjá þig!